NJÓSNALEIÐANGUR UM HERNÁMSSETRIÐ Hernámssaga Hvalfjarðar er mikil og merk og því hefur Hernámssetur verið sett upp að Hlöðum sem segir sögu hernáms í Hvalfirðir frá árunum 1940 til 1945 Anddyri - Svæði A - ÁVARP HERMANNS JÓNASSONAR - Seinni heimsstyrjöldin stóð yfir á árunum 1939 – 1945. Árið 1940 ákváðu Bretar að tryggja stöðu Bandamanna í Norður – Atlantshafi með því að hernema Ísland. Veist þú hvaða dag herskip Breta komu til landsins? 9. apríl 1. desember 10. maí Dreifibréf úr lofti - Hernámsdaginn sveif flugvél yfir Reykjavík og dreifði blaðsneplum yfir borgina. Í anddyri safnsins má finna eitt slíkt blað. Í dreifibréfinu biður hernámsliðið Íslendinga um að: Yfirgefa borgina í nokkra klukkutíma Taka vinalega á móti þeim. Aðstoða við handtöku Þjóðverja. WINSTON CHURCHILL - Winston Churchill var forsætisráðherra Bretlands árin 1940 – 1945. Hann heimsótti hernámsliðið á Ísland árið 1941 á leið sinni um Atlantshafið. Á ljósmyndum á vegg í anddyrinu má sjá Churchill í Reykjavíkurhöfn. Á myndinni sendir hann þeim sem fagna komu hans, táknræna kveðju: Hann veifar hendinni að hætti þjóðhöfðingja. Hann myndar sigurmerkið. Hann heilsar að hermannasið. Ready to send